Innsýn í starfsemi Vinagarðs

Í tilefni af 50 ára afmæli Vinagarðs voru gerð stutt myndbönd um nokkra mikilvæga þætti í starfi leikskólans. Myndböndin má sjá hér fyrir neðan en þau sýna meðal annars gildi skólans, útkennslu, læsi og málörvun, sköpun og mikilvægi leiksins. Endilega kynnið ykkur starfið okkar í Vinagarði!

Málverk barna af litríkum ávöxtum með andlitum
Hugmyndafræði leikskólans
Leikskólinn Vinagarður byggir starf sitt á kristilegum grunni þar sem lögð er áhersla á að efla kristið siðgæði og veita trúarlegt uppeldi sem byggir á gildum skólans um trú, von og kærleika.
Teikning barns: „Ég ætla að verða listakona“
Starfsaðferðir
Formleg menntun einstaklinga hefst í leikskóla, fyrsta stigi skólakerfisins. Þar á velferð og hagur barna að vera leiðarljós í öllu starfi, börnum skal veitt umhyggja, hollt og hvetjandi uppeldisumhverfi og stuðlað að öryggi þeirra og vellíðan.
Fiskar úr pappadiskum hanga úr loftinu
Námssvið leikskóla
Námssvið leikskólans eru læsi og samskipti, heilbrigði og vellíðan, sjálfbærni og vísindi, sköpun og menning.
Regnbogafiskar málaðir með handafari
Mannauður leikskólans og samstarfsaðilar
Þau sem starfa með börnum takast á hendur mikilvægasta starf hvers samfélags. Því fylgir mikil ábyrgð að sinna á sama tíma hvatningu, stuðningi, umhyggju, aga, þroska, námi, samskiptum og öllu því sem börnin upplifa í leik og starfi skólans.