Foreldrafélag

Um foreldrafélagið

Foreldrafélag Vinagarðs leikskóla KFUM og KFUK var stofnað í febrúar 2001. Var félagið þá rekið á kennitölu leikskólans. Þann 14. mars 2016 var haldinn formlegur stofnfundur og í kjölfarið var félagið stofnað með eigin kennitölu.

Tilgangur félagsins er að sameina foreldra barna á Vinagarði leikskóla KFUM og KFUK og standa vörð um velferð barna í leikskólanum.

Foreldrafélagið skipuleggur ýmsa viðburði eins og haustferð í Vatnaskóg, jólasveinaheimsóknir, jólaball, páskaeggjaleit og vorhátið. Foreldrafélagið leggur einnig hönd á plóg við vorhreinsun lóðarinnar og er tilbúið til aðstoðar hvenær er þörf á.

Eftirtaldir sitja í stjórn foreldrafélagsins veturinn 2026-2027
Sigrún Tómasdóttir er formaður og gjaldkeri.
Bergdís Helga Bjarnadóttir
Hildur Ýr Hilmarsdóttir
Dmitri Antonov

Auk þess kallar stjórn foreldrafélagins aðra foreldra til aðstoðar vegna viðburða og fleira. Leikskólastjórar taka þátt í skipulagningu starfsins og sitja fundi foreldrafélagsins.

2026-2027

Félagsgjöld

Félagsgjald fyrir veturinn 2026-2027 var ákveðið 7.000 kr fyrir eitt barn og 9.500 kr fyrir tvö eða fleiri.
Foreldrar eru hvattir til þess að greiða gjaldið sem mætir kostnaði við starfsemi félagsins og er að öllu leyti nýtt í þágu barnanna og leikskólans.

Reikningsupplýsingar

Félagsgjöld eru innheimt með kröfum í netbanka en ekki með millifærslu. Hér fyrir neðan eru reikningsupplýsingar félagsins.

  • Kt. 470416-0170
  • Reikningsnúmer 0526-26-470416
Foreldrar

Lög foreldrafélagsins

1. gr.

Félagið heitir Foreldrafélag Vinagarðs leikskóla KFUM og KFUK.

2. gr.

Heimili félagsins og varnarþing er að Holtavegi 28, 104 Reykjavík.

3. gr.

Tilgangur félagsins er að sameina foreldra barna á Vinagarði leikskóla KFUM og KFUK og standa vörð um velferð barna á leikskólanum.

4. gr.

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að standa fyrir viðburðum fyrir börn á leikskólanum og fjölskyldur þeirra, fylgjast með starfi leikskólans og vinna náið með leikskólastjóra.

5. gr.

Félagsaðild. Allir foreldrar barna á leikskólanum geta verið félagar í félaginu. Félagsmenn greiða árgjald eins og það er ákveðið á aðalfundi. Þeir félagsmenn sem ekki geta, aðstæðna sinna vegna, greitt árgjald halda þó félagsréttindum sínum.

6. gr.

Starfstímabil félagsins er 1. október – 30. september ár hvert. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins foreldrar/forráðamenn barna á leikskólanum og starfsmenn leikskólans mega vera þátttakendur í aðalfundi.

7. gr.

Aðalfund skal halda eigi síðar en 15. október ár hvert og skal boða til hans með minnst tveggja vikna fyrirvara með tryggilegum hætti. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram
  3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
  4. Lagabreytingar
  5. Ákvörðun félagsgjalds
  6. Kosning stjórnar
  7. Önnur mál

8. gr.

Stjórn félagsins skal skipuð fimm félagsmönnum: formanni, ritara, gjaldkera og tveimur meðstjórnendum ásamt að minnsta kosti tveimur varamönnum. Stjórn og varamenn eru kjörin á aðalfundi til eins árs í senn. Stjórnin skiptir með sér verkum. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður boðar til funda. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.

9. gr.

Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi. Félagsgjöld skulu innheimt árlega.

10. gr.

Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið til að uppfylla tilgang félagsins skv. 3. grein.

11. gr.

Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með 2/3 hluta atkvæða og renna eignir þess til Vinagarðs leikskóla KFUM og KFUK.

Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi þann 14. mars 2016.