Gátlistinn Heilsufar barna á leikskólaaldri er samstarfsverkefni Heilsugæslu höfuðboorgarsvæðisins, Almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra og fleiri aðila.
Hann leiðbeinir um hvenær veik börn eiga ekki að koma í leikskólann og hvernig staðið skal að sóttkví leikskólabarna. Vonast er til að gátlistinn svari spurningum foreldra og starfsmanna leikskóla.
Barn á ekki að koma í leikskólann ef:
- Barnið er með hita.
- Barnið er með kvef, hósta og að minnsta kosti eitt af eftirtöldum einkennum til viðbótar:, slappleika, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki og/eða niðurgang.
- Barnið er í sóttkví, einangrun eða beðið er niðurstöðu sýnatöku.
Veikindi leikskólabarna:
- Barn skal sótt í leikskólann ef heilsufar þess breytist; barnið fær hita yfir 38°C og flensulík einkenni.
- Leikskólabörn skulu að jafnaði vera hress og hitalaus í að minnsta kosti sólarhring, áður en þau koma aftur í leikskólann.
Um sóttkví leikskólabarna:
- Börn fara í sóttkví samkvæmt leiðbeiningum heilbrigðisstarfsfólks eða smitrakningarteymis ef þau hafa verið í tengslum við aðra, óháð aldri þeirra, sem greindir hafa verið með smit eða grun um smit.
- Börn sem ekki hafa þroska eða getu til að virða þær ráðstafanir sem eru forsenda þess að hluti heimilisfólks geti verið í sóttkví, þarf allt heimilið, þ.m.t barnið, að fara í sóttkví eða þeir sem ekki eru í sóttkví að fara annað um leið og sóttkví kemur til.
- Lengd sóttkvíar er ákvörðuð af smitrakningateymi eða heilbrigðisstarfsfólki.
Leitið ráðgjafar hjá heilsugæslu,
- Ef vafi leikur á því hvort barnið ætti að fara í leikskólann.·
- Til að fá nánari upplýsingar um einkenni, eða lengd sóttkvíar
Fengið af vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins 17. september 2020.