Aðalfundur Vinagarðs leikskóla KFUM og KFUK verður haldinn miðvikudaginn 14. mars 2018 kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn á Uglugarði, Holtavegi 28.
Dagskrá
- Starfsskýrsla leikskólans.
- Starfsskýrsla stjórnar.
- Ársreikningur
- Starfs- og fjárhagsáætlun 2018
- Kosning í stjórn
- Kosning skoðunarmanna reikninga
- Önnur mál.
Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa fullgildir félagar í KFUM og KFUK á Íslandi sem greitt hafa árgjald liðins starfsárs. Foreldrar barna á Vinagarði eru velkomnir á fundinn.