Opið fyrir innritun í Vinagarð hjá Reykjavíkurborg!
Nú hefur innritunarkerfi Reykjavíkurborgar verið opnað fyrir val á sjálfstætt starfandi leikskólum og hvetjum við ykkur öll sem eruð á biðlista hjá okkur að færa [...]
Innritun fyrir haustið 2025
Nýtt samkomulag við Reykjavíkurborg felur í sér nokkuð breytt fyrirkomulag á innritun barna í leikskólann Vinagarð. Reykjavíkurborg mun innrita í sjálfstætt starfandi leikskóla á tímabilinu [...]
Innritun 2024
Innritun nýrra barna fyrir starfsárið 2024-2025 hefst mánudaginn 8.apríl. Biðlistinn hjá okkur er töluverður og því ekki líklegt að við tökum inn mjög ung börn [...]
Framundan
Páskaleyfi – leikskólinn lokaður
Fimmtudagur 24. apríl
Sumardagurinn fyrsti – leikskólinn lokaður
Fimmtudagur 1. maí
Baráttudagur verkalýðsins – leikskólinn lokaður
Laugardagur 10. maí 10:00 - 12:00
Vorhátíð Vinagarðs og opið hús
Föstudagur 13. júní 15:00 - 16:00
Þjóðhátíð Vinagarðs
Hvað segja foreldar um Vinagarð?
Ég er einstaklega þakklát fyrir að bæði börnin mín hafa fengið að alast upp að hluta á Vinagarði. Þakklætið snýr fyrst og fremst að yndislegu starfsfólki skólans þó að öll umgjörð og aðstaða er einnig til fyrirmyndar.
Á Vinagarði starfar duglegt, metnaðarfullt og einstaklega umhyggjusamt fólk sem auðgar með nærveru sinni, hlýju og fagmennsku líf þeirra barna sem fá að vera í kringum það. Aðferðir skólans við að örva skilningsvit og forvitni barnanna eru aðdáunarverðar og dugnaður starfsfólks við að búa til dýrmætar upplifanir fyrir börnin er ótrúlegur.
Báðum börnunum mínum hefur liðið mjög vel á Vinagarði og að lokinni leikskólagöngu hóf sonur minn skólagöngu sína með gott veganesti á borð við falleg gildi, sterka félagslega getu og ekki var það verra að hann var orðin fluglæs þökk sé leikskólanum.
Vinagarður er einstakur leikskóli í sérlega fallegu umhverfi með frábæru starfsfólki, fullur af hlýju og ró. Tónlistarstundirnar og málbeinin hans Lubba skila sér heim á hverjum degi. Það sem mér finnst þó merkilegast og dýrmætast er að starfsfólkið skuli vera jafn brosandi glatt í loks dags og það er að morgni. Vinagarður er réttnefni!
Klárlega einn besti leikskólinn! Ég hef mjög mikla og góða reynslu af Vinagarði. Eldri börnin mín tvö voru á leikskólanum, dásamlegt starfsfólk alltaf brosandi, gott andrúmsloft frábært útisvæði, mín börn hlökkuðu alltaf til í að fara í leikskólann og nú þessi yngsta. Mæli 100% með Vinagarði.
Frábært og fræðandi leikskólastarf með hjartahlýjum kennurum.
Við hjónin höfum verið svo lánsöm að hafa haft stelpurnar okkar á Vinagarði. Við höfum jafnvel lagt á okkur langan akstur daglega svo það megi verða.
Starfsfólk Vinagarðs er dásamlegt og leggur sig alltaf fram um að hlúa fallega að börnunum í öllu því sem þau taka sér fyrir hendur.
Takk fyrir okkur 🙂